02 — Sálgæsla og handleiðsla fyrir fólk í framlínu
Minningarsjóður Ólafar Töru og Þjóðkirkjan standa að verkefni sem veitir fólki í framlínu baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi aðgang að gjaldfrjálsri sálgæslu og handleiðslu.
Markmiðið er að styðja við þau sem standa daglega með öðrum í erfiðum aðstæðum, skapa þeim rými til að vinna úr álagi starfsins og stuðla að því að þau geti sinnt mikilvægu starfi sínu án þess að brenna út.
Þjónustan er trúnaðarmál og þátttakendum að kostnaðarlausu. Þjóðkirkjan stendur að fullu undir kostnaði við verkefnið.
Bókun og nánari upplýsingar
Hægt er að bóka tíma hjá séra Laufeyju með því að senda tölvupóst á Laufey@kirkja.is
01 — Gulur september | Hljóðferðalag fyrir fólk í sorg
Í Gulum september stóð Minningarsjóður Ólafar Töru fyrir tveimur gjaldfrjálsum hljóðferðalögum og tónheilunarkvöldum fyrir fólk sem hafði misst ástvin. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lotus þjálfun og Tónalind.
Markmiðið var að skapa hlýtt og öruggt rými þar sem fólk í sorg gat komið og einfaldlega verið. Enginn þurfti að segja frá, útskýra líðan sína eða standa sig á nokkurn hátt. Hljóð, kyrrð og nærvera fengu að skapa rými til að anda, hvílast og gefa líkama og taugakerfi smá hvíld.
Kvöldin fóru fram hjá Lotus Þjálfun í Hátúni 6B í Reykjavík í september 2026 og voru þátttakendum að kostnaðarlausu. Frjáls framlög runnu óskipt til Minningarsjóðs Ólafar Töru.
Verkefnið var hluti af Gulum september – vitundarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.
Kannski einn daginn verð ég tölfræðin um konuna sem lést langt fyrir aldur fram vegna afleiðinga ofbeldis, með öllum hinum konunum.
- Ólöf Tara