Minningarsjóður Ólafar Töru

Til stuðnings þeim sem standa í framlínu baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.

Styrkja sjóðinn

Um Ólöfu Töru og minningarsjóðinn

Ólöf Tara hafði sterka réttlætiskennd og lét sig málefni annarra varða. Hún var óhrædd við að taka afstöðu, standa með fólki og láta rödd sína heyrast. Hún hafði kjark til að segja það sem henni fannst, líka þegar það var ekki vinsælt. 

Minningarsjóður Ólafar Töru Harðardóttur var stofnaður í hennar minningu, til að halda áfram þeim gildum sem hún stóð fyrir.

Tími þagnarinn er löngu liðinn

 - Ólöf Tara Harðardóttir

Fyrsta verkefni sjóðsins

Fyrsta verkefni Minningarsjóðs Ólafar Töru Harðardóttur er að veita fólki í framlínu baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi aðgang að gjaldfrjálsri sálgæslu og handleiðslu. 

Verkefnið er unnið í samstarfi við Þjóðkirkjuna og hefur það að markmiði að styðja við geðheilsu og fyrirbyggja kulnun.

Nánar um verkefnið

Styrktu minningarsjóðinn

Með styrk til Minningarsjóðs Ólafar Töru hjálpar þú okkur að styðja þau sem standa í framlínu baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.

Hver styrkur skiptir máli og hjálpar okkur að halda starfinu áfram.

Styrkja sjóðinn

Rödd Ólafar Töru

Greinar, skrif og hugleiðingar Ólafar Töru um réttlætið, jafnrétti og samfélagið.

Lesa skrif Ólafar Töru