Í kvöld opnaði ég viðburð um konur sem eru látnar vegna afleiðinga ofbeldis með ræðu, sem ég deili hér neðar. Ég er alltaf smá wildhorse og fer út fyrir handritið, en hún var nokkurnveginn svona:
Við erum hér samankomin af nokkrum ástæðum, en fyrst og fremst til þess að minnast þeirra kvenna sem eru ekki lengur með okkur vegna afleiðinga kynbundis ofbeldis. Þessi kertavaka er til þess varðveita minningu þeirra og auðvitað til að minna okkur á að við eigum enn langt í land, við megum ekki sofna á verðinum, við þurfum reglulega að þjappa samstöðuna og hughreysta hvort annað.
Eðlilega hvort sem við erum þolendur, aðstandendur eða brjálað baráttufólk þá sest allt bakslag í baráttunni í taugakerfið okkar, árið 2024 hefur verið eitt stórt fokking bakslag. Þessvegna er svo mikilvægt að við stöndum hér saman í dag.
Á þessari kvöldstund er fólk á vegum BBC með okkur, þau eru hér á Íslandi til þess að taka upp heimildarmynd um jafnrétti á Íslandi, því Ísland hefur á erlendri grundu verið kynnt sem feminíska paradís, sem eitt öruggasta land í heimi. En fyrir hvern er Ísland öruggt? Tölfræðin um algengi kynbundis ofbeldis á Íslandi er sú sama og í öðrum vestrænum löndum. Tíðni kvenmorða er sú sama og í mörgun öðrum vestrænum löndum sem við eigum að standa framar þegar það kemur að jafnrétti. Þögla hlutan hér þarf að segja upphátt, ísland er eitt öruggasta land í heimi, nema að þú sért kona. Það eitt og sér segir okkur að stjórnvöld líta ekki á kynbundið ofbeldi þeim alvarlegu augum sem það er. Faraldur sem ógnar lífi og heilsu kvenna og stúlkna.
Feminíska paradísin okkar sem veitir barnaníðingum og nauðgurum uppreista æru einungis fimm árum eftir afplánun refsingar, feminíska paradísin okkar sem gefur fullorðnu fólki leyfi til að sofa hjá börnum svo lengi sem þau hafa náð 15 ára aldri, feminíska paradísin okkar sem veitir nauðgurum skilorðsbunda dóma að fullu fyrir lífshættulegar líkamsárásir og nauðganir, feminíska paradísin okkar sem afmennskar þolendur kynferðisofbeldi niður í vettvang glæps, feminíska paradísin okkar sem níu konur og þolendur ofbeldis urðu að kæra til mannréttinda dómstóls evrópu fyrir að brjóta á rétti þeirra til réttlátar málsmeðferðar.
Feminíska paradísin okkar sem útskrifar þolendur heimilisofbeldis í hendur geranda sinna eftir innlögn og aðhlynningu á Landspítalanum. Íslensk rannsókn sem birt var árið 2021 sýndi akkurat fram á það að meirihluti kvenna sem leggjast inn á Landspítalan vegna heimilisofbeldis eru útskrifaðar aftur heim, í umræddri rannsókn kom fram að 8% kvennanna höfðu erlent ríkisfang, meðal legutími þeirra voru 20 dagar, í nokkrum tilfellum var legutími 100 dagar og lengst 267 dagar. Í meirihluta tilvika var gerandi núverandi maki, í 24% tilvika var gerandi fyrrum maki. 14% kvennanna í úrtakinu eru nú látnar og var meðalaldur þeirra 52 ár. Að meðaltali voru liðin 2,7 ár frá því þær höfðu legið inná landspítala vegna heimilidofbeldis þegar þær létust. Það má því segja að það sé tímaspursmál hvort þolendur lifi af ofbeldið þegar alvarleikastig ofbeldisins er orðið slíkt að þolandi leitar til heilbrigðisstofnanna vegna áverka sinna.
Jafnvel þó konur lifi af ofbeldið þá eru lífsgæði þeirra verulega skert og þær glíma við afleiðingar út lífið. Stoðkerfis sjúkdómar, vefja- og taugasjúkdómar, meltingarvandamál, svefntruflanir, skemmdir á líffærum, geðræn vandamál, átraskanir, fíkniraskanir, kvíði, þunglyndi, félagslega einangrun, neikvæð áhrif á fjárhagslegt öryggi, örorka fyrir aldur fram svo lengi mætti telja. Aftur, jafnvel þó þær lifi af ofbeldið sjálft er alls ekki víst að þær lifi af afleiðingarnar.
Kynbundið ofbeldi fær að þrífast í skjóli aðgerðaleysis stjórnvalda, innan réttakerfisins sem er algjörlega ófært um að refsa fyrir kynbundið ofbeldi og veitir ítrekað dóma afslátt á ofbeldi, innan lögreglunnar sem ítrekað gerir þolendum erfitt fyrir að sækja réttláta málsmeðferð vegna skelfilegra og ófagmannlegra vinnubragða, í skaðlegri orðræðu innan samfélagsins, í smelliþorsta fjölmiðla sem fjalla alltof oft um ofbeldi á kostnað þolenda og af algjöru virðingarleysi og í gegnum aldanna rás hefur þöggun innan fjölskyldna haldið þolendum í hreðjum skammar. Ofbeldi er ekki einkamál, það er ekki harmleikur, það stigmagnast ekki í handahófskenndu tómi. Við eigum tölfræðina, við eigum þekkinguna.. Það er hægt að vinna gegn þessari óhugnalegu þróun, það þarf vilja og það þarf framkvæmd. Við verðum að hætta að láta orð og innantóm loforð duga. Við verðum að draga lærdóm af fortíðinni og hafa hærra.
Að lokum langar mig að spyrja og beina spurningu minni að þeim sem raunverulega hafa völd til þess að hjálpa okkur… hversu margar byltingar í viðbót? hversu margar konur í viðbót er ásættanlegur fórnarkostnaður? Hveru mörg líf í viðbót? Hvað þarf til að kynbundið ofbeldi sé tekið alvarlega og við sjáum raunverulegar aðgerðir í stað innantómra orða? Svo langar mig að spyrja ykkur, sem eruð venjulegt fólk eins og ég, fólk með forréttindi, hversu lengi ætlum við að láta bjóða okkur uppá þetta? Áratug, hundruð ár? Þúsund ár? Ég bið ykkur um að fara heim og spyrja ykkur að því ,,hvað get ég gert?
Þó svo að ég sé reið og sár, er ég líka uppfull af orku til að halda áfram að berjast, ég vona að þessi viðburður fylli ykkur af orku og eldmóð til að berjast með okkur… ég veit að ég get ekki hætt núna, ég verð að halda áfram fyrir formæður mínar, fyrir vinnukonurnar, fyrir konurnar sem var drekkt í drekkingarhyl fyrir að vera þolendur ofbeldis, fyrir stúlkurnar sem voru vistaðar á kleppjárnsreykjum og stimplaðar lauslátar, fyrir Áslaugu Perlu og allar þær sem ekki lifðu af, fyrir Gerði, móður Áslaugar Perlu sem lést áður en hún fékk réttlæti fyrir dóttur sína, fyrir þær sem báru harm sinn í hljóði, fyrir sjálfa mig, fyrir framtíðina.