Í dag kl 17:00 er Ljósaganga á vegum UN Women. Í dag er nefnilega alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundu ofbeldi.
Ár hvert er þema á þessum viðburði, í ár er þemað kvenmorð. Það ætti okkur öllum að vera ljóst hversvegna það varð fyrir valinu. Tíðni kvenmorða hafa ekki mælst jafn hátt á Íslandi í yfir þrjá áratugi. Síðast þegar við sáum svipaðar tölur var árið 1988.
Baráttan gegn kynbundu ofbeldi hefur staðið yfir lengur en ég hef lifað. Konur sem hafa lifað af þjáningar kvalara sinna hafa berskjaldað sig inn að beini í þágu breytinga. Þessar konur uppskera oftar en ekki háð af samfélaginu, þeim er ekki trúað og þær eru því miður í kjölfarið af því að tala óheflað um ofbeldismenninguna sem hér ríkir útsettar fyrir frekara ofbeldi.
Tölfræðin sem ómar um þessar mundir er
- Á 10 mínútna fresti er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir.
- Á heimsvísu verður 1 af hverjum 3 konum og stúlkum beittar líkamlegu og/eða kynferðislegu ofbeldi á lífsleiðinni, á Íslandi er það 1 af hverjum 4.
- 1 af hverjum 4 unglingsstúlkum verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi.
Við eigum mikið magn af tölfræði. Tölfræðin hefur verið leiðandi í baráttunni. Hún setur algengi ofbeldis í samhengi. Eða hvað? Tölfræðin er ein af þeim leiðum sem konur tóku að nýta sér því reynsluheimur þeirra er ekki marktækur nema tölfræðin fylgi með. Þjáningar kvenna er tölfræði.
Árið 2024 erum við ennþá að reyna sannfæra með tölfræði að kynbundið ofbeldi sé vandamál. Við erum ennþá bara einhver fokking tölfræði, ein af hverjum fjórum, tíu prósentin sem kærði, 3,48 prósentið sem fékk sakfellingu, sautján prósentið sem fékk áheyrn dómstóla.
Tölfræðin er svar við aðgerðaleysi stjórnvalda og hún er ekki síst svar til karlmanna, þeirra karlmanna sem hrópa ,,not all men’’ í hvert skipti sem kona talar um kynbundið ofbeldi.
Konur hafa reynt lengi að fá karla til að leggja baráttunni lið. Tala gegn ofbeldi og standa með okkur, ekki síst líka þá fyrir karlkyns þolendur sem þjást líka vegna feðraveldisins. Mér er þá reglulega hugsað hversvegna karlar reiðast þegar að konur tala um kynbunduð ofbeldi án þess að segja allir karlar. Þegar við setjum hlutina í stærra samhengi hverjir eru það sem segja ,,allir karlar’’? Það eru karlar sjálfir. Það byrjar á unglingsárum okkar þegar pabbar okkar og bræður vara okkur við hættunum sem við stöndum frammi fyrir um leið og við verðum kynþroska, það eru mest karlmenn sem segja að þeir geti ekki átt platóníska vináttu við konu því karlar vilja bara eitt frá konum, það eru karlmenn sem kenna fatnaði kvenna um hegðun sína og kynbræðra sinna, það eru karlar sem halda því fram að konur kalli yfir sig ofbeldi eða áreiti með því að vera vinalegar.
Þeir vita alveg hvað við erum að benda á með tölfræðinni, vandamálið er að tölfræðin mennskar okkur ekki.
Hún gerir okkur bara að tölfræði, gögn í máli og einhvernveginn þvert á við tölfræði um rangar sakagiftir erum við allar lævísir lygarar sem stjórna körlum með kynlífi. Kynlíf er gjaldmiðillinn og yfirráðin sem við höfum yfir körlum.
Ég Ólöf Tara er ein af hverjum fjórum, ég er ein af þeim sem kærði ekki. Kannski einn daginn verð ég tölfræðin um konuna sem lést langt fyrir aldur fram vegna afleiðinga ofbeldis, með öllum hinum konunum. Tölfræði í lifandi lífi og tölfræði eftir lifandi líf.
Það sem ég er kannski að reyna segja er að tölfræðin er mikilvæg, en þolendur eru bara svo miklu miklu meira.
Just my dark thoughts á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundu ofbeldi, læt mynd af tölfræðinni fylgja með.